mánudagur, ágúst 18, 2008
sunnudagur, ágúst 10, 2008
Elska ágúst, gott veður og sól, bakgarð og styttur og vini og brosandi barn.
Elska haust og burðarpoka á sunnudegi,ketti og bláan vagn.
Elska heimsókn og mánudaga og heimt frá útlöndum.
Elska að finna lykla

föstudagur, ágúst 01, 2008
Við Lea litla vorum úti í garði í dag. Mér datt í hug að það væri gaman að vera í grasinu, kasta á milli og fara í kapp um túnið.
Leu fannst það ógeðslegt.
Henni þótti sniðugt að sitja á pallinum og tína upp í sig steypu og fíflablöð. Reyndar rann steypan betur ljúfar niður en fíflablöðin. Hún er ekki komin af múrurum fyrir ekki neitt...
Persónutöfrar mínir dugðu ekki til, Lea sat sem fastast á pallinum og horfði móður sína fyrirlitningar augum í grasinu.
Svo kom kisi og þá stökk Lea af stað út á grasið til vinar síns.